Fotbolti.net
01.10.26 - 21:38
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Heimir: Liðið mitt hefur aldrei skorað svona mark

Heimir: Liðið mitt hefur aldrei skorað svona mark
Canon

Mynd: EPA

Írland tapaði niður tvegjga marka forystu gegn Austurríki í kvöld en Troy Parrott skoraði bæði mörk Íra í fyrri hálfleik.

Heimir Hallgrímsson var í viðtali eftir leikinn og sagði að menn hafi verið þreyttir á líkama og sál eftir erfiða viku.
„Við misstum tökin út af þreytu. Þá byrjum við að gera mistök. Við erum auðvitað ekkert ánægðir með það, fyrri hálfleikurinn var góður, við vitum að við getum þetta. Ég bjóst við því að við yrðum bensínlausir en kannski ekki svona fljótt," sagði Heimir.

Fyrra mark Parrott var stórkostlegt. Hann fékk boltann á miðjum vellinum og fór illa með tvo varnarmenn Austurríkis áður en hann renndi boltanum í netið.

„Liðið mitt hefur aldrei skorað svona mark. Þetta var stórkostlegt einstaklingsframtak. Ég vil sjá þetta aftur. Hann hefur verið frábær fyrir okkur síðustu tvö ár og er á skriði þessa stundina. Okkur fannst hann vera orðinn þreyttur og við vildum ekki að hann myndi meiðast, hann er mikilvægur leikmaður."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.