Fotbolti.net
01.10.26 - 21:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Meistaradeild kvenna: Dýrkeypt fyrir Real Madrid - Dómarinn þvældist fyrir

Khadija Shaw

Khadija Shaw

Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn
Það var dramatík þegar Man City fékk Real Madrid í heimsókn í 2. umferð Meistaradeildar kvenna í kvöld.

Linda Caicedo sá til þess að Real Madrid var með forystuna í hálfleik. Khadija Shaw, sem var besti leikmaður ensku deildarinnar á síðustu leiktíð, jafnaði metin í upphafi seinni hálfleiks.
Silvia Cristobal skoraði fyrir Real Madrid undir lok leiksins en dómarinn hafði flautað þar sem hún var fyrir Beth Mead og kom í veg fyrir að hún gæti varist skotinu. 1-1 urðu lokatölur. Bæði lið eru með tvö stig.

PSG gerði jafntefli gegn Real Madrid í fyrstu umferð en liðið vann stórsigur á Leuven í kvöld. Leuven er með eitt stig.

Naomie Feller átti stórleik fyrir PSG. Hún skoraði tvennu og lagði upp tvö mörk.

Manchester City 1 - 1 Real Madrid
0-1 Linda Caicedo ('29 )
1-1 Khadija Shaw ('51 )

PSG 5 - 0 Oud-Heverlee
1-0 Rasheedat Ajibade ('9 )
2-0 Naomie Feller ('51 )
3-0 Naomie Feller ('65 )
4-0 Sakina Karchaoui ('69 )
5-0 Yaya ('84 )
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.