02.10.26 - 07:00
Elvar Geir Magnússon
Mora í sigtinu hjá Liverpool - Real hefur áhuga á Quansah

Mexíkóski táningurinn Gilberto Mora.

Mynd: EPA

Real Madrid hefur áhuga á Quansah.

Mynd: EPA

Olmo vill ljúka ferlinum í Zagreb.

Mynd: EPA

Mexíkóski táningurinn Gilberto Mora.

Mynd: EPA

Góðan og gleðilegan föstudaginn. Er eitthvað betra en að byrja daginn á sjóðheitum slúðurpakka? BBC tók saman það helsta sem er í umræðunni.
Mexíkóska ungstirnið Gilberto Mora (17) er í sigtinu hjá Liverpool. Mora varð á dögunum yngsti markaskorari landsliðs Mexíkó en hann leikur fyrir Club Tijuana í heimalandinu. Borussia Dortmund og Benfica hafi einnig áhuga á sóknarmiðjumanninum þrælefnilega. (Teamtalk)
Hið konunglega félag Real Madrid sýnir áhuga á enska varnarmanninum Jarell Quansah (23), leikmanni Bayer Leverkusen. Arsenal gerði tilboð í þennan fyrrum leikmann Liverpool í sumar og Chelsea sýndi honum einnig áhuga. (Bild)
Spænski miðjumaðurinn Dani Olmo, leikmaður Barcelona, vill ljúka ferlinum hjá Dinamo Zagreb í Króatíu en þar hóf hann aðalliðsferil sinn. (Fichajes)
Kanadíski sóknarmaðurinn Jonathan David (26) er þegar farinn að sannfæra Atletico Madrid um að breyta lánssamningi hans frá Juventus í varanleg kaup fyrir 21 milljón punda. (Fichajes)
Inter í Mílanó hefur áhuga á ítalska miðjumanninum Alessandro Romano (20) sem er í láni hjá Cagliari frá Roma. Inter gæti gert tilboð ef tyrkneski landsliðsmaðurinn Hakan Calhanoglu (32) yfirgefur félagið þegar samningur hans rennur út næsta sumar. (Gazzetta dello Sport)
Roma tókst ekki að fá brasilíska sóknarmanninn Endrick (20) lánaðan frá Real Madrid í sumar en hefur enn áhuga á að fá hann til liðs við sig í janúar. (Gazzetta dello Sport)
Barcelona kannaði möguleikann á að fá króatíska varnarmanninn Josko Gvardiol (24) á síðasta tímabili en ljóst var að hann vildi ekki yfirgefa Manchester City. (Mundo Deportivo)
Barcelona og Inter fylgjast með varnarmanninum Finn Jeltsch (20) hjá Stuttgart en Þjóðverjinn ungi vekur einnig áhuga félaga í ensku úrvalsdeildinni. (Sky Sports Þýskalandi)
Ítalska félagið Bologna hefur samið um að fá ítalska varnarmanninn Matteo Darmians (36) á frjálsri sölu en hann yfirgaf Inte eftir síðasta tímabil. (Fabrizio Romano)