01.10.26 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ánægður með Zidane - „Svipað og hjá PSG"


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Franska landsliðið hefur unnið báða leikina sína undir stjórn Zinedine Zidane. Hann er aðeins fjórði þjálfarinn til að vinna fyrstu tvo leiki sína með franska landsliðinu.
Ousmane Dembele byrjaði í fyrri leiknum gegn Tyrklandi og kom inn á gegn Belgíu en báðir leikirnir enduðu 1-0. Dembele er mjög hrifinn af Zidane.
Ousmane Dembele byrjaði í fyrri leiknum gegn Tyrklandi og kom inn á gegn Belgíu en báðir leikirnir enduðu 1-0. Dembele er mjög hrifinn af Zidane.
„Þjálfarinn gefur okkur mikið frelsi, sérstaklega okkur framherjunum. Þessi hugmyndafræði er svipuð og hjá PSG. Við reynum að njóta okkar, þjálfarinn vill að liðið spili, markt líkt með PSG," sagði Dembele.
„Það eru margir gæðaleikmenn í kringum mig hjá PSG og í franska landsliðinu. Ég veit að ég verð að skora og senda boltann. Ég er ánægður í þessu liði."
„Það eru margir gæðaleikmenn í kringum mig hjá PSG og í franska landsliðinu. Ég veit að ég verð að skora og senda boltann. Ég er ánægður í þessu liði."
