Fotbolti.net
01.10.26 - 15:12
Kári Snorrason

Óðinn Bjarka á leið í KR

Óðinn Bjarka á leið í KR
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR er að festa kaup á Óðni Bjarkasyni frá Aftureldingu og mun hann ganga til liðs við félagið eftir tímabil.

Frá þessu var greint í Dr. Football og passar það við heimildir Fótbolta.net. Búist er við að hann verði tilkynntur sem nýr leikmaður KR von bráðar.
Óðinn, sem er tvítugur kantmaður, var lykilmaður í liði Aftureldingar sem vann Lengjudeildina á nýafstöðnu tímabili. Hann skoraði fjórtán mörk í 21 leik og var valinn í lið tímabilsins hér á Fótbolta.net.

Óðinn er uppalinn hjá KR en lék með ÍR að láni tímabilið 2025. Síðasta vetur gekk hann síðan til liðs við Aftureldingu, sem keypti hann frá KR.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.