Ræðir ráðninguna á Jökli - „Erum að fara aðeins aftur í það horf“

Nýr þjálfari Breiðabliks.

Mynd: Breiðablik


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik ræddi við Arnar Grétarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kemur til Breiðabliks eftir að hafa verið í Garðabæ í tæp fjögur ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyjólfur Héðinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varð Íslandsmeistari með Breiðabliki.

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Þjálfaði Augnablik.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Nýr þjálfari Breiðabliks.

Mynd: Breiðablik
Í síðustu viku var Jökull Elísabetarson ráðinn þjálfari karlaliðs Breiðabliks og tekur við starfinu af Ólafi Inga Skúlasyni sem stýrði Breiðabliki til bikarmeistaratitils á liðnu tímabili.

Alltaf planið að koma aftur - „Þetta lið þarf á honum að halda"
Tikkar í ansi mörg box
En hvað var það sem Breiðablik var að horfa í?
„Það voru nokkur atriði sem við vorum að leita að. Maður þarf að lesa í ýmislegt, t.d. að viðkomandi passi vel inn í Breiðabliksumhverfið. Maður horfir líka út frá leikmannahópnum, hvað myndi passa fyrir hópinn. Viðkomandi þarf að vera góð manneskja, félagi og metnaðarfullur."
„Jökull tikkar í ansi mörg box. Hann hefur leikið hér sem leikmaður, þjálfað hjá félaginu, hefur þjálfað í efstu deild undanfarin tímabil, þekkir deildina og þekkir leikmennina. Hann hefur þjálfað í Evrópukeppni, við erum að fara í Evrópu á næsta ári. Hann er góður drengur og tikkaði í allflest boxin."
Var þetta á endanum þannig að þetta var á milli tveggja aðila og svo stóð Jökull upp úr?
„Nei, við hefðum alveg getað tekið einhverja fleiri aðeins lengra. Á endanum þá leið okkur mjög vel með Jökul og í þeim samræðum sem við áttum speglaðist okkar sýn mjög vel við hans. Það voru alveg nokkrir einstaklingar sem við hefðum getað tekið lengra ef Jökull hefði fallið úr skaftinu. Við erum himinlifandi að þetta sé niðurstaðan."
Veit hvað Breiðablik stendur fyrir
Leikstíll Breiðabliks í sumar var mikið á milli tannanna á fólki, þetta þótti ekki alveg nógu skemmtilegt. Er það eitthvað sem þið horfið í hjá Jökli, að hann geti komið inn með skemmtilegan fótbolta?
„Já, ekki spurning. Hann var framúrstefnulegur oft á tíðum hjá Stjörnunni og þeir spiluðu oft á tíðum mjög skemmtilegan fótbolta, sérstaklega framan af þjálfaraferlinum hans. Þá hreyfst ég með og eflaust margir aðrir. Hann hefur þjálfað bæði 2. flokk og Augnablik hérna, og hefur leikið hérna, þannig hann veit vel hvað Breiðablik stendur fyrir og vill standa fyrir. Það má alveg færa fyrir því rök að við séum að fara aðeins aftur í það horf."
Snert á ansi mörgu
Það hefur verið rætt um að Stjörnuliðið hafi ekki verið í nægilega góðu formi á tímabilinu. Er það eitthvað sem þið hafið snert á?
„Já, við erum búin að snerta á ansi mörgu og meðal annars því. Við erum með okkar styrktarþjálfara sem þurfa að sjá til þess að liðið okkar sé í formi. Það voru atriði, meiðsli og annað, hjá Stjörnunni sem urðu þess valdandi að sumir voru ekki í alveg í sínu besta standi."
Ekki viss um að það væri besta nálgunin
Varðandi leikmannahópinn og umræðu um „player power". Eruð þið í einhverju samtali við leikmannahópinn, einhver kjarni innan hópsins sem þið talið við, áður en nýr þjálfari er ráðinn?
„Nei, við höfum ekki átt í formlegum samræðum við leikmenn varðandi slíkt. Við erum ekki að kalla menn á fund og spyrja „hvað finnst ykkur?" eða eitthvað svoleiðis. Meira óformleg spjöll, en ekkert þannig að þeir hafi úrslitaatkvæði. Ég er ekki viss um að það væri besta nálgunin."
Ágætlega skemmtilegt en kannski ekki á hverju ári
Hvernig er að vera í svona ferli, vera í hringiðunni og taka ákvarðanir varðandi þjálfara?
„Maður væri til í að vera kannski ekki oft í þessari stöðu. Maður vill að það sé stöðugleiki. Núna vorum við að gera þetta í annað skiptið á rúmu ári og það er kannski ekki staða sem maður vill vera í. Maður vill hafa þjálfara sem getur verið hjá félaginu til lengri tíma. Burtséð frá því þá er alveg ágætlega skemmtilegt að vera í þessu ferli, ræða við þjálfara og sjá og heyra þeirra sýn á Breiðablik og hvernig þeir sjá hlutina fyrir sér. Það er alveg gefandi og lærdómsríkt fyrir okkur sem komum að þessu að sjá hvernig fólk lítur á Breiðablik utan frá. Ég er samt ekki að segja að ég myndi vilja vera í þessu á hverju ári."


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik ræddi við Arnar Grétarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kemur til Breiðabliks eftir að hafa verið í Garðabæ í tæp fjögur ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyjólfur Héðinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varð Íslandsmeistari með Breiðabliki.

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Þjálfaði Augnablik.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

