Fotbolti.net
18.12.12 - 07:30
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Lið vikunnar í enska - Þrír frá Aston Villa

Nathan Baker var flottur í vörn Aston Villa.

Nathan Baker var flottur í vörn Aston Villa.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er komið að úrvalsliði vikunnar í enska boltanum. Líkt og oftast er liðið fengið frá Garth Crooks, sérfræðingi BBC.

Manchester City vann sigur en grannar þeirra í United neituðu að gefa eftir sex stiga forystu sína. Norwich heldur áfram að vekja verðskuldaða athygli, QPR vann fyrsta leik sinn á tímabilinu og Aston Villa átti frammistöðu helgarinnar á Anfield.


Markvörður - Hugo Lloris, Tottenham
Í fyrsta sinn í liði vikunnar eftir að hafa haldið hreinu gegn Swansea. Það hefur ekki verið auðvelt fyrir Lloris að vinna sér inn sæti í liðinu en það tókst.

Hægri bakvörður - Matthew Lowton, Aston Villa
Verulega öflugur í varnarhlutverkinu hjá Villa í glæsilegum sigri á Liverpool.

Miðvörður - Ryan Shawcross, Stoke City
Leikurinn gegn Everton einkenndist af mikilli baráttu, eins og margir leikir Stoke. Fellaini var nóg boðið og verður ekki á jólakortalistanum hjá Shawcross.

Miðvörður - Nathan Baker, Aston Villa
Sýndi það með tæklingu sinni strax í upphafi að hann var tilbúinn í slaginn. Baker er lykilhlekkur í vörn Villa.

Vinstri bakvörður - Kieran Gibbs, Arsenal
Traustur varnarlega og hættulegur fram á við í stórsigri gegn Reading. Átti tvær stoðsendingar í leiknum.

Miðjumaður - Yaya Toure, Manchester City
Ekki verið eins öflugur á þessu tímabili og hann var á því síðasta en var magnaður gegn Newcastle. Stoðsending hans í fyrsta markinu var algjör klassi.

Miðjumaður - Adel Taarabt, QPR
Leikmaður sem hefur mikla hæfileika en sýnir þá of sjaldan. Var þrusuflottur gegn Fulham þar sem QPR vann fyrsta sigur sinn á tímabilinu.

Miðjumaður - Anthony Pilkington, Norwich
Hefur tekið miklum framförum undir Christ Hughton. Skoraði frábært mark gegn Wigan og þau hefðu getað verið fleiri. Lagði líka upp mark.

Sóknarmiðjumaður - Santi Cazorla, Arsenal
Vörn Reading náði engan veginn að höndla hann, Lukas Podolski, Kieran Gibbs og Santi Cazorla. Ef þetta hefði verið hnefaleikabardagi hefði hann verið stöðvaður. Cazorla setti sína fyrstu þrennu í enska boltanum.

Sóknarmaður: Robin van Persie, Manchester United
Hefur gert gott lið enn betra. Van Persie átti stórleik gegn Sunderland en hann hefur skorað 60 mörk í 72 úrvalsdeildarleikjum síðan í upphafi ársins 2011.

Sóknarmaður: Christian Benteke, Aston Villa
Þessi 21 árs leikmaður var óstöðvandi gegn Liverpool. Þessi belgíski sóknarmaður skoraði tvö mörk úr þremur skotum um liðna helgi.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.