Fotbolti.net
28.12.12 - 10:00
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Lið vikunnar í enska 2 - Gareth Bale fyrirliði

Gareth Bale gat brosað á miðvikudag.

Gareth Bale gat brosað á miðvikudag.

Canon

Mynd: Getty Images

Gareth Bale fer fyrir úrvalsliðinu að þessu sinni en hann skoraði þrennu í 4-0 sigri Tottenham gegn Aston Villa.

Leikið var á öðrum degi jóla og hér má sjá þá sem stóðu upp úr að mati vefsíðunnar Goal.com.


Markvörður - Simon Mignolet, Sunderland
Sunderland vann magnaðan 1-0 sigur gegn meisturunum í Manchester City.

Varnarmaður - Gary Cahill, Chelsea
Einn af þremur leikmönnum Chelsea í þessu úrvalsliði eftir 1-0 sigur á Norwich.

Varnarmaður - Carlos Cuellar, Sunderland
Var ákaflega traustur gegn City. Sunderland hefur gengið vel gegn þeim ljósbláu.

Varnarmaður - Chico, Swansea
Hjálpaði Swansea að halda hreinu gegn Reading.

Hægri kantur - Leon Osman, Everton
Var í stuði í sigri gegn Wigan.

Miðjumaður - Youssouf Mulumbu, West Brom
Var sem akkeri á miðjunni þegar WBA tók þrjú stig gegn QPR.

Miðjumaður - David Luiz, Chelsea
Heldur áfram að leika verulega vel sem miðjumaður hjá bláliðum.

Vinstri kantur - Juan Mata, Chelsea
Spánverjinn skoraði sigurmark Chelsea gegn Norwich.

Sóknarmiðjumaður - Gareth Bale, Tottenham
Bale er fyrirliði í úrvalsliðinu að þessu sinni eftir þrennuna gegn Aston Villa

Sóknarmaður - Kenwyne Jones, Stoke
Mark og tvær stoðsendingar í öflugum sigri Stoke gegn Liverpool.

Sóknarmaður - Robin van Persie, Manchester United
Kaup ársins í enska boltanum. Höddi Magg er búinn að dæma.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Bale fékk að eiga boltann eftir þrennuna og skellti honum á jólatré sitt í staðinn fyrir stjörnu.

Bale fékk að eiga boltann eftir þrennuna og skellti honum á jólatré sitt í staðinn fyrir stjörnu.

Canon

Mynd: Twitter

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.