„Leikmenn vilja kannski ekki taka þátt í því sem ég vil gera"
„Þetta var skelfing, við vorum okkur til skammar," sagði Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir þungt 5-1 tap gegn Þrótti í Bestu deildinni í dag. Tapið var fjórða tap Stjörnunnar í röð og að sögn Óskars versta frammistaða liðsins í sumar.