27.09.26 - 17:14
Helgi Inguson
„Leikmenn vilja kannski ekki taka þátt í því sem ég vil gera"
Auglýsing

„Í dag eigum við skilið að fara heim og skammast okkar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var skelfing, við vorum okkur til skammar," sagði Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir þungt 5-1 tap gegn Þrótti í Bestu deildinni í dag. Tapið var fjórða tap Stjörnunnar í röð og að sögn Óskars versta frammistaða liðsins í sumar.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 5 - 1 Stjarnan
„Ég þarf að kafa djúpt í sjálfan mig. Ég ber ábyrgð á þessu tapi, ég er þjálfari liðsins. Það er klárt mál að ég byrja með vitlausa uppstillingu og upplegg í leikinn í dag. Mér fannst allar aðgerðir okkar vera daprar, við vorum litlar og biðum bara eftir því að sjá hvað Þróttarar myndu gera sem léku á als oddi í fyrri hálfleik," sagði Óskar.
Hvert var uppleggið?
„Við ætluðum að komast aftur fyrir þær. Við ætluðum að komast í hálfsvæðin með hliðartíglinum okkar. Við ætluðum að pinna hafsentana þeirra niður og pressa þær. Þú sást ekkert af þessu í dag.
Þess vegna segi ég að ég hljóti að bera ábyrgð á þessu, því uppleggið sem ég legg með í þessum leik er engan veginn farið eftir. Það er á mér. Það er nokkuð ljóst að ég er ekki nægilega skýr, eða leikmenn kannski vilja ekki taka þátt í því sem ég vil gera."
Það vantaði hungur í Stjörnuliðið í dag. Megum við eiga von á fleiri ungum leikmönnum sem spila fyrir klúbbinn?
„Já klárlega, ekki spurning. Það er spurning um setja bara flestar í liðið fyrir næsta leik. Það er mjög efnilegar stúlkur að koma upp, ég setti þær ekki inná í dag því að mér fannst ekki rétt að henda þeim inná til að bjarga málunum sem við höfðum komið okkur í. Það er bara ósanngjarnt," sagði Óskar að lokum.
Viðtalið er töluvert lengra og má finna það í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.