27.09.26 - 17:52
Helgi Inguson
Jóhann Kristinn um Bríeti: Hún fer þangað sem hún ætlar sér
Auglýsing

Jóhann Kristinn, þjálfari Þróttar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bríet Fjóla Bjarnadóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Kristinn, þjálfari Þróttar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur gjörsigraði Stjörnuna á Pepsi vellinum í Laugardalnum í dag. Fótbolti.net ræddi við Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfara Þróttar, eftir leik.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 5 - 1 Stjarnan
„Það var gríðarlega mikil orka í mínu liði, mér fannst pressan vera frábær í leiknum. Þó svo að við höfum hjálpað þeim aðeins inn í leikinn með því að skora fyrir þær mark í seinni hálfleik þá stýrðum við þessu frá A til Ö. Ég er ógeðslega stoltur og ánægður með leikmenn Þróttar í dag," sagði Jóhann um leikinn.
Hin 16 ára gamla Bríet Fjóla Bjarnadóttir greip allar fyrirsagnir er hún skoraði þrennu í leiknum.
„Bríet er bara mögnuð, hún er frábær fótboltakona. Þrátt fyrir aldur og allt það, það skiptir engu máli. Hún er að standa sig mjög vel. Hún er líka mjög jarðbundin og veit alveg að það þarf að hafa fyrir þessu, það er ekki sjálfgefið að vera eins og hún er."
Hvað mun hún leika mikið lengur á Íslandi?
„Það er frábær spurning. Ég veit það ekki, þetta er allt spurning um tíma og rétta tímapunktinn. Hún fer þangað sem hún ætlar sér. Ég veit að hún getur það og á eftir að gera það."
Mollee Swift, markvörður Þróttar, framlengdi við félagið í vikunni.
„Þú sást það í dag að hún þurfti að grípa aðeins inn í. Þetta er náttúrulega besti markmaðurinn á landinu. Hún er frábær og þetta eru stórtíðindi og mikið gleðiefni," sagði Jóhann.