26.09.26 - 23:38
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Ef við ætlum að láta eitthvað í okkur heyra þurfum við að gera betur"
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV tapaði gegn Breiðabliki í dag eftir að hafa verið marki yfir í hálfleik. Fótbolti.net ræddi við Guðnýju Geirsdóttur, markvörð ÍBV, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 2 Breiðablik
„Við áttum svolítið fyrri hálfleikinn og áttum mögulega að skora fleiri. Við mættum ekki nógu vel inn í seinni hálfleikinn, við töluðum um að þær myndu keyra á okkur í seinni hálfleik og ætluðum að vera tilbúnar í það en vorum það greinilega ekki," sagði Guðný.
ÍBV er nýliði í Bestu deildinni en situr í 3. sæti deildarinnar þegar liðið á þrjá leiki eftir.
„Það var enginn sem spáði okkur svona hátt. En við höfðum alltaf trú á því að við gætum verið þetta ofarlega en ef við ætlum að láta eitthvað í okkur heyra þurfum við að gera betur en í seinni hálfleik í dag," sagði Guðný.
„Jón Óli var mjög hógvær, var ekki að segja eitt eða neitt. Við í klefanum vorum alveg fastar á því að við gætum þetta. Vorum í Lengjudeildinni í fyrra, komust í undanúrslit (bikarsins) og töpuðum gegn Blikum í uppbótatíma. Við vissum að ef við myndum gefa allt í þetta tímabil ættum við allan séns á þessu. Við erum búnar að sýna það í sumar en þurfum að gera betur en í seinni hálfleik."