Eiður Smári: Vissum að þessi dagur yrði mjög tíðindamikill
„Mér fannst við fara aðeins brösulega af stað. Vorum kannski aðeins ryðgaðir eftir þessa þriggja vikna pásu. En við nýttum hana vel hvað æfingar varðar. Kærkomin úrslit, við þurftum á þeim að halda og vitum hvað er fram undan. Við þurfum að ná í öll stig sem eru í boði,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen, þjálfari KA, eftir 3-0 sigur liðsins á Stjörnunni á Samsungvellinum fyrr í dag.