Fotbolti.net
10.10.26 - 17:00
Sverrir Örn Einarsson

Aron Birkir: Ég þurfti eiginlega ekki að gera neitt í dag

Auglýsing
Aron Birkir Stefánsson

Aron Birkir Stefánsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Birkir Stefánsson stóð í marki Þórs í 1-0 sigri Þórs á Akureyri fyrr í dag. Sigurinn var afskaplega mikilvægur fyrir norðanmenn sem eru í harðri baráttu um að halda sæti sínu í deildinni. Aron var því að vonum nokkuð kátur í leikslok þegar Fótbolti.net ræddi við hann.
Lestu um leikinn: Þór 1 - 0 ÍBV
„Tilfinningin er hrikalega góð, mér fannst hann (sigurinn) eiginlega hafa átt að vera stærri og þá sérstaklega eftir fyrri hálfleikinn. Svo fáum við eitt eða tvö dauðafæri í seinni hálfleiknum til þess að klára þetta en bara heilt yfir góður leikur af okkar hálfu.“

Þegar líða fór á síðari hálfleikinn gerðu gestirnir úr ÍBV hvað þeir gátu til þess að jafna leikinn en vörn Þórs stóð þétt og hleypti eyjamönnum ekki í færin . Um varnarleikinn sagði Aron.

„Ég þurfti eiginlega ekki að gera neitt í dag. Ási og Gyrðir og allir hinir þarna fyrir framan unnu alla vinnuna. Temmilega þægilegt í dag og þeir bara illa flottirog við höfum bara sýnt það í sumar að við getum spilað almennilegan varnarleik þegar við erum allir 100% on it. “

Aron lenti umdeildu atviki í fyrri hálfleik er hann lenti í samstuði við Aron Lucas Vokes sóknarmann ÍBV. Einhverjir vildu meina að um brot og rautt spjald væri að ræða á Aron en Vilhjálmur Alvar dómari leiksins dæmdi ekkert og lét leik halda áfram. Hvernig horfði atvikið við Aroni og hvernig er hann eftir það?

„Ég bara sé boltann, fer út, næ snertingu á boltann eftir minni vitund og svo bara lendum við saman sem var óheppilegt.“

„Stebbi náði eitthvað að tjasla þessu saman í hálfleik. Svo sjáum við bara á morgun og restina af vikunni hvernig fer.“

Sagði Aron Birkir en allt viðtalið við hann má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.