Fotbolti.net
10.10.26 - 17:22
Andri Stefánsson

„Hann sýndi að hann getur verið gjörsamlega frábær“

Auglýsing
Jói Kalli, þjálfari FH.

Jói Kalli, þjálfari FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur tók á móti FH í Bestu deild karla í dag. FH fóru með sigur af hólmi í markaleik af bestu gerð. Fótbolti.net ræddi við Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfara FH, eftir leik.
Lestu um leikinn: Valur 3 - 5 FH
„Bara sáttur með þessa frammistöðu. Virkilega vel gert hjá okkur í dag. Við komum okkur frábærlega inn í leikinn og vorum aggressívir og grimmir, bæði sóknarlega og varnarlega. Það var frábært að fylgjast með liðinu svona heilsteyptu í dag.“

Leikplanið gekk upp
FH-ingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og nýttu hraðann í sóknarleiknum vel. Jói Kalli sagði það hafa verið hluta af leikplaninu.

„Já, algjörlega. Við vitum að við erum með hörkugóða leikmenn þarna frammi, Kjartan, Gils og Kristján Flóka. Þeir eru allir með mikil vopn og mikil gæði. Við ætluðum að spila beint og keyra á þá á fullri ferð. Það heppnaðist sérstaklega vel snemma í leiknum.“

FH náði góðri forystu í fyrri hálfleik en Valsmenn sýndu meiri kraft eftir hlé.

„Við sýndum kannski smá værukærð í seinni hálfleik sem við vorum ekki alveg sáttir með, en leikmennirnir voru búnir að leggja svo mikið á sig til að komast í þessa forystu að maður getur ekki verið að pirra sig of mikið á því.“

Gils fær stórt hrós
Gils átti stórleik fyrir FH og skoraði þrennu. Jói Kalli var sérstaklega ánægður með frammistöðu hans.

„Hann var algjörlega frábær í dag. Hann hefur verið stigandi í sínum leik og bætt sig helling í öllu sem hann gerir fyrir liðið. Hann kemur sér alltaf í þessar stöður nálægt markinu, bæði með hlaupum aftur fyrir vörnina og með því að fara einn á einn. Hann sýndi í dag að hann getur verið gjörsamlega frábær.“

Þriðji sigurinn í röð
FH hefur nú unnið þrjá leiki í röð og stefnir á að halda sigurgöngunni áfram þegar liðið heimsækir ÍBV í næstu umferð.

„Frammistöðurnar hafa verið fínar hjá okkur í ansi langan tíma og það er alltaf sætt að fá þessa sigra. Við erum komnir á gott ról og ætlum að halda áfram á sömu braut, fara til Eyja í næstu viku og sækja annan sigur þar.“

Jói Kalli sagðist jafnframt staðráðinn í að enda tímabilið af krafti.

„Það er alltaf gaman að vera í fótbolta og spila leiki. Við ætlum að keyra á þetta á fullri ferð, æfa vel í vikunni og vera klárir fyrir næsta leik.“
Gils fagnar marki ásamt Kristjáni Flóka.

Gils fagnar marki ásamt Kristjáni Flóka.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla - Neðri hluti

#LiðLmunStig
1Valur25-531
2Stjarnan25-1231
3FH25-430
4KA25-1026
5Þór25-3324
6ÍBV25-1619
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.