Fotbolti.net
10.10.26 - 22:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ægir Jarl: Það er eina leiðin gegn KR

Auglýsing
Ægir Jarl: Það er eina leiðin gegn KR
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta er virkilega svekkjandi. Það er eina orðið yfir það," sagði Ægir Jarl Jónasson, leikmaður Fram eftir tap gegn KR í kvöld.
Lestu um leikinn: Fram 1 - 2 KR
„Það er dýrt að ná ekki að bara skora meira í fyrri hálfleik. Það hefði sett okkur í miklu betri stöðu og mér fannst við vera að þjarma að þeim þá og mikið mómentum með okkur en svona er þetta, þetta er ekki alltaf eins og maður vill.

Ægir var ánægður með spilamennsku liðsins.

„Mér fannst við mæta þeim bara alveg á fullu og það er eiginlega eina leiðin. Þeir eru með gott lið og góðir í því sem þeir gera. Mér fannst við mæta þeim vel í dag og úr varð mjög góður leikur en svona er þetta stundum. Það vantaði eitthvað aðeins meira."

Ægir Jarl spilaði með KR undir stjórn Rúnars Kristinssonar sem er nú þjálfarinn hans hjá Fram.

„Maður pælir ekkert allt of mikið í því þegar það er búið að flauta á. Þá er þetta hver annar leikur svo sem. En auðvitað er þetta smá sérstakt þegar maður pælir í sögunni."

Fram er fjórum stigum á eftir KR í baráttunni um 2. sæti deildarinnar.

„Það eru tveir leikir eftir og við ætlum að reyna að að vinna okkar leiki og sjá hvað gerist. Það er það eina sem við getum fókusað á."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.