Rúnar Kristins: Þeir hittu tvisvar á markið og í bæði skiptin fór boltinn inn


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Kristins var svekktur með niðurstöðuna í leik Fram og KR sem endaði með 1-2 tapi á Lambhagavellinum gegn gömlu félögunum í baráttunni um 2. sætið í Bestu deildinni en hann gat þó verið stoltur af frammistöðu síns liðs.
„Það er huggur í því að vera betri aðilinn gegn KR og vera meira með boltann og töluverða yfirburði í skotum á markið og allri tölfræði en KR er með hörku gott lið, þeir hittu tvisvar sinnum á markið og í bæði skiptin fór boltinn inn.''
„Auðvitað eiga þeir fullt af hættulegum momentum eins og við en ef þú horfir beint í tölfræðina vorum við betri.''
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan en þar fer Rúnar vel ofan í saumana á ansi mörgum atriðum.
