Fotbolti.net
10.10.26 - 17:19
Kári Snorrason

Eiður Smári: Vissum að þessi dagur yrði mjög tíðindamikill

Auglýsing
Eiður Smári Guðjohnsen.

Eiður Smári Guðjohnsen.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér fannst við fara aðeins brösulega af stað. Vorum kannski aðeins ryðgaðir eftir þessa þriggja vikna pásu. En við nýttum hana vel hvað æfingar varðar. Kærkomin úrslit, við þurftum á þeim að halda og vitum hvað er fram undan. Við þurfum að ná í öll stig sem eru í boði,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen, þjálfari KA, eftir 3-0 sigur liðsins á Stjörnunni á Samsungvellinum fyrr í dag.
KA er tveimur stigum fyrir ofan Þór, sem er í fallsæti, en tvær umferðir eru eftir af mótinu.

„Við þurfum alltaf að vinna okkar, þá þurfum við ekkert að spá í öðru. Vissum að þessi dagur yrði mjög tíðindamikill, sama hvernig færi. Við getum bara einbeitt okkur að því sem við gerum, það þýðir ekki að spá í öðrum,“ sagði Eiður.

Hvernig voru vikurnar þrjár þar sem Besta deildin var í landsleikjahléi?

„Ég held að það hafi verið fínt fyrir strákana að fá vikufrí. Fá að kúpla sig aðeins út. Ég held að þeir hafi verið mun ánægðari með fyrstu vikuna heldur en það sem tók við. Það var aðeins keyrt aðeins keyrt á þá. Ég vil alltaf sjá betri fótbolta og meira og meira. En 3-0 útisigur, maður kvartar ekki yfir því,“ sagði Eiður að lokum.
Tveimur stigum frá fallsæti.

Tveimur stigum frá fallsæti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.