10.10.26 - 17:40
Kári Snorrason
Adam Ægir: Við eigum Akureyri og ætlum að halda því þannig
Auglýsing

Adam skoraði annað mark KA í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ánægður í KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Adam skoraði annað mark KA í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er gott svar eftir þessa pásu. Ég var smá hræddur um að við myndum slaka eitthvað á eftir þetta hlé en þetta virkaði vel. Gott á laugardagskvöldi,“ sagði Adam Ægir Pálsson, leikmaður KA eftir 3-0 sigur liðsins á Stjörnunni fyrr í dag.
Lestu um leikinn: Stjarnan 0 - 3 KA
KA er í harðri fallbaráttuna við erkifjendurna í Þór. Adam segir það ekki erfitt fyrir liðið að gíra sig upp í baráttu gegn Þórsurum. „Nei, alls ekki. Við eigum Akureyri og við ætlum að halda því þannig. Enda fyrir ofan Þór, það er markmiðið. Akureyri er gul og blá.“
Óvissa eftir tímabil
Adam verður samningslaus að tímabilinu loknu og er óvíst hvað framtíðin beri í skauti sér hjá honum.
„Ég er mjög sáttur í KA og líður vel fyrir norðan. Ég held að ég hafi sýnt það nánast alls staðar ef ég finn að ég er elskaður og fæ traust þá skila ég. Ég er virkilega ánægður í KA og þeir hafa sýnt mér traustið sem ég þarf.
En jú það er óvissa, við tökum stöðuna eftir tímabil. Við eigum eftir að halda okkur uppi. Við höfum eitthvað aðeins rætt saman en þurfum að klára þetta tímabil af krafti og þá getum við rætt þetta betur.“