Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   fim 15. desember 2016 21:25
Jóhann Ingi Hafþórsson
Heimir Guðjóns: Þurfum að bæta við okkur í öllum línum
Heimir Guðjónsson var ekki sáttur við sína menn í kvöld.
Heimir Guðjónsson var ekki sáttur við sína menn í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst þetta vera hneisa. Ég held það sé alveg öruggt að síðan ég tók við þessu FH liði árið 2007 höfum við aldrei tapað svona stórt. Við gátum ekkert og þeir voru miklu betri en við," sagði Heimir Guðjónsson eftir 6-1 tap fyrir Fjölni í úrslitaleik Bose mótsins í kvöld.

Heimir sá ekkert jákvætt við leikinn og segir hann Fjölnismenn einfaldlega hafa sundurspilað sitt lið.

„Þeir sundurspiluðu okkur á köflum og við vorum allt of seinir. Grunn skipulagið var lélegt, við eltum ekki mennina okkur og unnum ekki tæklingar."

„Sóknarlega vorum við arfaslakir, það var lítil hreyfing. Við töpuðum boltanum á slæmum stöðum og þeir fóru í hraðar sóknir. Það var ekkert jákvætt."

Hann segir augljóst að FH þurfi að bæta við sig mönnum fyrir sumarið.

„Við þurfum að bæta við okkur í öllum línum. Við þurfum að fá hafsent, miðjumann og vængmann. Við þurfum að fá 3-4 leikmenn."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner