Hermann Hreiðarsson, landsliðsfyrirliði, afhenti í dag fimm samtökum styrk sem að safnaðist á Herminatior Invitational golfmótinu í sumar.
Hermann hélt golfmótið í Vestmannaeyjum í júní og um það bil 2,8 milljónir króna söfnuðust þar.
Í dag afhenti Hermann síðan samtökunum ágóðann en Umhyggja, Barnaspítali hringsins og Mæðrastyrksnefnd fengu öll 800 þúsund krónur.
Blátt áfram fengu 200 þúsund krónur og SOS Barnaþorpin 175 þúsund krónur.
Á myndinni til hliðar má sjá Hermann og fulltrúa samtakanna. Auk þess er fulltrúi Rolf Johansen á myndinni en fyrirtækið styrkti golfmótið í júní. Hér fyrir neðan eru síðan fleiri myndir frá afhendingunni í dag.
Athugasemdir