Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
   lau 01. október 2016 11:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ásgeir Sigurgeirs: Ég verð í Pepsi á næsta ári
Ásgeir var valinn sá efnilegasti í Inkasso-deildinni
Ásgeir var valinn sá efnilegasti í Inkasso-deildinni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var mjög gott tímabil hjá mér og liðinu öllu og ég er mjög sáttur," Ásgeir Sigurgeirsson, leikmaður KA við Fótbolta.net í gærkvöldi.

Ásgeir var útnefndur efnilegasti leikmaðurinn í Inkasso-deildinni á lokahófi Fótbolta.net í gærkvöldi en það eru þjálfarar og fyrirliðar í deildinni sem velja.

„Mér fannst ég þurfa taka eitt skref afturábak til að starta ferlinum aftur eftir meiðsli og KA bauð mér að koma til þeirra og mér fannst það mjög spennandi verkefni hvernig þeir ætluðu að byggja upp og ég endaði þar. Ég er mjög sáttur," sagði Ásgeir ennfremur, en hann hann samdi um að leika með KA á þessu leiktímabili á láni frá Stabæk í Noregi.

Ásgeir átti virkilega gott sumar fyrir norðan, en hann skoraði átta mörk í sautján leikjum í Inkasso-deildinni með KA í sumar.

„Þetta var eiginlega fullkomið sumar, fyrir utan kannski smá meiðsli hjá mér, en það kemur," sagði Ásgeir, en hann fer núna í það að taka stöðuna.

„Ég er bara að taka stöðuna núna með mínum mönnum og það er allt opið. Ég verð í Pepsi á næsta ári," en þegar hann var spurður út í hvaða lið það væri sem hann myndi spila með, sagðist hann óviss. „Það er ekki ennþá komið, það er að skýrast vonandi bráðum."

Nánar er rætt við þennan efnilega leikmann í spilaranum hér að ofan.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner