AD Sportwereld í Hollandi spáir því að Jairo Riedewald verði óvænt í byrjunarliði gegn Íslandi í kvöld.
Riedwald, sem spilar með Ajax, á engan landsleik að baki en hann verður 19 ára gamall í næstu viku.
Danny Blind, nýr þjálfari Hollendinga, ætlar að taka Bruno Martins Indi úr liðinu og setja Riedwald í hjarta varnarinnar samkvæmt frétt Sportwereld.
Davy Klaassen, Georginio Wijnaldum og Wesley Sneijder verða á miðjunni samkvæmt spá fjölmiðilsins og Arjen Robben, Klaas Jan Huntelaar og Memhpis Depay í fremstu víglínu.
Sportwereld spáir því að Alfreð Finnbogason komi inn í byrjunarlið íslenska landsliðsins eins og sjá má hér til hliðar. Emil Hallfreðsson er líka í líklegu liði en hann er ekki leikfær vegna meiðsla
Athugasemdir