Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 03. desember 2016 14:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
David Luiz: Vil helst ekki tala um svona hluti
David Luiz og Willian minnast hér fórnarlamba flugslyssins
David Luiz og Willian minnast hér fórnarlamba flugslyssins
Mynd: Getty Images
„Þetta var frábær leikur. Það er við þessu sem þú býst við í ensku úrvalsdeildinni," sagði David Luiz, varnarmaður Chelsea, eftir 3-1 sigur gegn Manchester City í stórleik helgarinnar á Englandi.

Chelsea lenti undir en þeir komu til baka og unnu loks 3-1 sigur. Luiz var ánægður með karakterinn hjá liðsfélögum sínum.

„Við sýndum styrk okkar, þetta sýnir líka karakterinn hjá okkur að við misstum ekki haus."

Sergio Aguero, sóknarmaður Man City, fékk að líta rauða spjaldið í uppbótartíma eftir ljóta tæklingu á David Luiz, en sjálfur vildi varnarmaðurinn ekki tjá sig mikið um málið.

„Ég vil helst ekki tala um svona hluti. Aguero er magnaður leikmaður sem gerir mikið fyrir fótboltann," sagði Luiz.

Luiz tileinkaði sigurinn þeim sem létust í flugslysinu yfir Kólumbíu í vikunni. Hann segir að nokkrir af þeim sem létust hafi verið vinir sínir, en í flugvélinni var brasilíska úrvalsdeildarliðið Chapecoense.

„Ég vil tileinka þennan sigur fólkinu sem dó í Brasilíu. Það var erfitt að koma hausnum í lag fyrir þennan leik þar sem ég átti nokkra vini þarna. Við verðum bara að biðja fyrir fjölskyldum þeirra."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner