Lokaleikir riðlakeppninnar í Bose mótinu fara fram í dag.
Tvö af stærstu liðum landsins, KR og FH, mætast í SoundLink riðlinum, en þar er allt í járnum. Báðir leikirnir hafa hingað til endað með 0-0 jafntefli og því mun liðið sem vinnur í dag vinna riðilinn.
Það er því mikið undir, en leikurinn sjálfur hefst klukkan 17:00 og er sýndur beint á SportTV.is.

Fjölnir og Víkingur úr Reykjavík mætast fyrr um daginn, en Víkingar þurfa aðeins jafntefli til þess að tryggja sér sigur í riðlinum. Fjölnir verður að vinna ef þeir ætla sér að spila til úrslita.
Báðir leikirnir fara fram í Egilshöll.
Laugardagur 3. desember
SoundSport riðillinn:
11:00 Fjölnir - Víkingur R. (Egilshöll)
SoundLink riðillinn:
17:00 KR - FH (Egilshöll - Beint á SportTV)
Athugasemdir