Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 04. október 2015 10:35
Arnar Geir Halldórsson
Ramos og Bale leikfærir fyrir stórleik kvöldsins
Þessir tveir verða í eldlínunni í Madrid í kvöld
Þessir tveir verða í eldlínunni í Madrid í kvöld
Mynd: Getty Images
Sergio Ramos og Gareth Bale eru í leikmannahópi Real Madrid fyrir stórleikinn gegn Atletico Madrid í kvöld en tvímenningarnir hafa glímt við meiðsli undanfarið.

Rafa Benitez, stjóri Real Madrid, lofar þó ekki að þeir muni byrja leikinn.

„Þeir tveir eru byrjaðir að æfa og verða í hópnum. Þeir hafa fengið grænt ljós á að spila. Leikformið er hinsvegar spurningarmerki og það verður að koma í ljós hvort þeir byrji eða ekki," sagði Benitez.

„Jafnvel þó þeir séu ekki 100% geta þeir reynst okkur mjög mikilvægir."

Kólumbíski snillingurinn James Rodriguez er enn frá vegna meiðsla og verður ekki með í kvöld en það er einnig stórt skarð höggvið í lið Atletico þar sem þeirra helsti miðjumaður, Koke, er ekki leikfær vegna meiðsla.

Leikurinn hefst klukkan 18:30 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.


Athugasemdir
banner
banner
banner