Juventus 1 - 2 Fiorentina
0-1 Mohamed Salah ('11)
1-1 Fernando Llorente ('24)
1-2 Mohamed Salah ('56)
0-1 Mohamed Salah ('11)
1-1 Fernando Llorente ('24)
1-2 Mohamed Salah ('56)
Fiorentina gerði sér lítið fyrir og lagði Ítalíumeistara Juventus á þeirra eigin heimavelli í fyrri leik liðana í undanúrslitum ítalska bikarsins í kvöld.
Lokatölur urðu 2-1 fyrir Fiorentina þar sem lánsmaðurinn Mohamed Salah fór á kostum og gerði bæði mörkin sem komu í sitthvorum hálfleiknum.
Þessi lunkni Egypti hefur nú skorað sex mörk í sjö leikjum fyrir Fiorentina síðan hann kom til félagsins frá Chelsea í janúar í stað Juan Cuadrado.
Fernando Llorente gerði mark Juventus þegar hann jafnaði metin í fyrri hálfleik.
Liðin mætast á ný eftir rúman mánuð.
Athugasemdir