Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 05. maí 2016 22:26
Arnar Geir Halldórsson
AS: Zidane verður áfram með Real Madrid
Zidane að fá alvöru samning?
Zidane að fá alvöru samning?
Mynd: Getty Images
Samkvæmt spænska fjölmiðlinum AS hefur Florentino Perez, forseti Real Madrid, tekið ákvörðun um framtíð Zinedine Zidane.

Franska goðsögnin mun stýra liðinu á næstu leiktíð samkvæmt þessum heimildum en Perez á að hafa tekið þessa ákvörðun í síðustu viku og höfðu úrslit vikunnar í Meistaradeildinni því ekki áhrif á ákvörðunina.

Zidane tók við stjórnartaumunum hjá Real Madrid í janúar á þessu ári þegar Rafa Benitez var rekinn.

Undir stjórn Zidane hefur Real Madrid sett mikla pressu á topplið Barcelona og Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni auk þess sem liðið tryggði sér sæti í úrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi.

Zidane hefur náð stórstjörnum Madridarliðsins á sitt band og hafa margir leikmenn félagsins talað fallega um Zidane opinberlega.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner