Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 09. desember 2017 16:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tyrkland: Theodór Elmar með stoðsendingu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Adanaspor 2- 2 Elazigspor
1-0 Oghuzan Aynaoglu ('52)
1-1 Tom ('56)
2-1 Gökhan Süzen ('61)
2-2 Mertan Özturk ('69)

Landsliðsmaðurinn Theodór Elmar Bjarnason og samherjar hans í tyrkneska liðinu Elazigspor gerðu jafntefli gegn Adanaspor í tyrknesku B-deildinni í dag.

Theodór Elmar lagði upp fyrr mark Elazigspor fyrir Wellington Brito da Silva, sem er betur þekktur sem Tom. Elmar spilaði allan leikinn og þótti standa sig vel.

Leikar enduðu með 2-2 jafntefli eftir að Elazigspor hafði lent tvisvar sinnum undir.

Emil og félagar eru í níunda sæti af 18 liðum. Gengið að undanförnu hefur ekki verið það besta.
Athugasemdir
banner
banner