Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 09. desember 2017 09:00
Ingólfur Stefánsson
Zidane: Ronaldo er miklu betri en ég
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane segir að Cristiano Ronaldo sé besti leikmaður allra tíma. Ronaldo vann sinn fimmta gullknött í vikunni og Zidane sem vann verðlaunin árið 1998 segir að tölfræði Ronaldo segi allt sem segja þarf.

„Hann er besti leikmaður í sögu fótboltans. Hann er miklu betri en ég var en það fer ekki í taugarnar á mér, hann hefur átt stórkostlegan feril."

„Það hefur margt verið sagt um hann en hlutirnir sem hann gerir á vellinum í hverjum einasta leik eru magnaðir. Hann hefur gert ótrúlega hluti fyrir þetta félag og mun halda áfram að gera það. Ég vona að hann spili hér þangað til hann leggur skónna á hilluna."

Ronaldo hefur skorað 418 mörk í 412 leikjum fyrir Real Madrid. Hann hefur unnið spænsku deildina tvisvar og Meistaradeildina þrisvar á 8 árum hjá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner