Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 11. mars 2018 06:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Ótrúleg tölfræði Swansea í leiknum við Huddersfield
Mynd: Getty Images
Swansea City heimsótti Huddersfield í ensku úrvalsdeildinni í gær en niðurstaðan þar var markalaust jafntefli.

Jordan Ayew fékk rautt spjald eftir aðeins 11. mínútur og það hjálpaði Swansea svo sannarlega ekki neitt í leiknum.

Swansea liðið átti ekkert skot í leiknum, var aðeins 19% með boltann og fékk enga hornspyrnu.

Þeir eru því væntanlega bara nokkuð sáttir með stigið úr því sem komið var en Swansea var lengi vel í neðsta sæti deildarinnar en er nú komið fjórum stigum frá fallsæti.



Athugasemdir
banner
banner
banner