Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 11. mars 2018 16:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Svíþjóð: Rakel og Anna Björk báðar á skotskónum
Rakel var á skotskónum.
Rakel var á skotskónum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anna Björk Kristjánsdóttir og Rakel Hönnudóttir voru báðar á skotskónum þegar Limhamn Bunkeflo 07 vann öruggan 6-1 sigur á Lidköp­ing í sænsku bikarkepppninni.

Léku þær báðar allan leikinn fyrir LB07 sem er fallið úr leik í bikarnum þrátt fyrir þennan flotta sigur.

Leikið er í riðlum í sænska bikarnum en LB07 hafði tapað báðum leikjum sínum fyrir leikinn í dag og endar með þrjú stig.

Rosengård hefur hins vegar unnið alla sína leiki og fer með fullt hús stiga, með níu stig, áfram í undanúrslitin. Rosengård vann 3-2 sigur á Kristianstad í Íslendingaslag í dag.

Glódís Perla Viggósdóttir lék með Rosengård í leiknum og Sif Atladóttir lék með Kristianstad. Elísabet Gunnarsdóttir er eins og flestir vita þjálfari Kristianstad.



Athugasemdir
banner
banner
banner