Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 12. janúar 2017 22:17
Jóhann Ingi Hafþórsson
Ítalski bikarinn: Sterk endurkoma hjá Milan
Bonaventura skoraði sigurmarkið.
Bonaventura skoraði sigurmarkið.
Mynd: Getty Images
AC Milan 2 - 1 Torino
0-1 Andrea Belotti ('27)
1-1 Juraj Kucka ('60)
2-1 Giancomo Bonaventura ('63)

AC Milan kom til baka og tryggði sér sæti í átta liða úrslitum ítalska bikarsins í kvöld.

Milan lenti undir gegn Joe Hart og félögum í Torino eftir tæplega hálftíma leik með marki frá Andrea Belotti, framherja sem Arsenal hefur áhuga á.

Það var eina mark fyrri hálfleiks en Milan kom sterkt til baka í seinni hálfleiknum og snéri dæminu við.

Á aðeins þrem mínútum voru Juraj Kucka og Giancomo Bonaventura búnir að snúa leiknum sér í vil og tryggja Milan í næstu umferð.
Athugasemdir
banner
banner