Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 12. janúar 2017 09:30
Magnús Már Einarsson
Klopp: Karius bjargaði lífi okkar
Klopp og Karius.
Klopp og Karius.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp segir að Liverpool geti þakkað Loris Karius fyrir að eiga ennþá möguleika á sæti í úrslitum enska deildabikarsins.

Liverpool tapaði 1-0 gegn Southampton í gær í fyrri leik liðanna í undanúrslitum.

Southampton hefði getað unnið stærra en Karius, sem hefur fengið mikla gagnrýni á tímabilinu, átti góðan leik og varði nokkrum sinnum vel.

„Við brugðumst ekki nægilega vel við eftir markið sem við fengum á okkur. Við vorum ekki nógu þéttir," sagði Klopp.

„Loris Karius þurfti að bjarga lífi okkar. Þetta var verðskuldaður sigur Southampton en það er bara hálfleikur í viðureigninni."

„Þetta var opinn leikur og opnir leikir eru erfiðir. Loris (Karius) þurfti að bjarga okkur nokkrum sinnum."

Athugasemdir
banner
banner
banner