Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 12. febrúar 2018 12:19
Auglýsingar
Grindavík og Jói Útherji með námskeið fyrir 3-5. flokk um næstu helgi
Mynd: Grindavík
Knattspyrnudeild UMFG og Jói Útherji halda knattspyrnunámskeið fyrir stráka og stelpur helgina 16. – 18. febrúar. Um er að ræða knattspyrnuskóla fyrir 3-5. flokk stráka og stelpna.

Mikil áhersla er lögð á að einstaklingurinn fái að njóta sín í knattspyrnuskólanum.

Unnið er í litlum hópum og er markmiðið að hver og einn fái góða innsýn í æfingaheim þeirra sem hafa atvinnu af því að stunda knattspyrnu. Skólinn er ekki síður fyrir markmenn en útileikmenn, enda boðið uppá sérstaka markmannsþjálfun.

Boðið verður upp á úrvals dagskrá sem inniheldur m.a Æfingar, fyrirlestra, mat, sund, skemmtun og fleira.

Gisting er í boði fyrir þátttakendur í 4.flokki og 3.flokki í Hópskóla.

Verð fyrir þessa þrjá daga er 10.000 kr.

Gestakennarar og fyrirlesarar: Ólafur Kristjánsson þjálfari m.fl kk FH - Gunnar Borgþórsson yfirþjálfari og þjálfari m.fl kk Selfossi - Alfreð Elías Jóhannsson þjálfari m.fl kvk Selfossi - Óli Stefán Flóventsson þjálfari m.fl kk Grindavík – Ray A. Jónsson þjálfari m.fl kvk Grindavík - Arngrímur Jóhann Ingimundarson yfirþjálfari yngri flokka Grindavíkur - Milan Stefán Jankovic þjálfari hjá Grindavík - Þorsteinn Magnússon markmannsþjálfari – Nihad Cober Hasecic þjálfari hjá Grindavík – Orri Freyr Hjaltalín þjálfari hjá Grindavík - Óli Baldur Bjarnason heilsunuddari og styrktarþjálfari – Leikmenn meistaraflokka Grindavíkur og margir fleiri.

Takmarkaður fjöldi er á námskeiðið og því um að gera að skrá sig sem fyrst.

Nánari upplýsingar og skráning með nafni og kennitölu berist á netfangið [email protected] fyrir 14. febrúar.
Athugasemdir
banner
banner