Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 12. apríl 2014 16:38
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Varði slaka vítaspyrnu Adebayor
Mynd: Getty Images
Emmanuel Adebayor, framherji Tottenham Hotspur á Englandi, bauð upp á slaka vítaspyrnu gegn WBA í dag.

WBA var tveimur mörkum yfir gegn Tottenham er gestirnir fengu vítaspyrnu. Þar gat Adebayor náð að klóra í bakkann fyrir liðið og koma því á skrið en hann reyndist alltof svalur á punktinum og lagði hann rólega í hægra hornið.

Ben Foster átti í engum vandræðum með að verja spyrnuna en eins og flestum er kunnugt lauk leiknum með 3-3 jafntefli.

Hægt er að sjá spyrnuna hér fyrir neðan.




Athugasemdir
banner