Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 13. janúar 2017 13:19
Magnús Már Einarsson
Henderson og Matip klárir fyrir leikinn gegn Man Utd
Henderson æfði á ný í gær.
Henderson æfði á ný í gær.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, staðfesti á fréttamannafundi nú rétt í þessu að Joel Matip og Jordan Henderson séu báðir klárir í slaginn fyrir leikinn gegn erkifjendunum í Manchester United á sunnudaginn.

Matip hefur verið frá keppni síðan 11. desember en hann æfði í gær og er klár í slaginn.

Henderson spilaði síðast gegn Manchester City á gamlársdag en hann hefur misst af fyrstu leikjum Liverpool á þessu ári.

Henderson æfði í gær og er klár fyrir stórleikinn á sunnudag.

Philippe Coutinho er einnig klár í slaginn en hann kom inn á sem varamaður gegn Southampton í fyrradag eftir að hafa verið fjarri góðu gamni síðan í lok nóvember.



Athugasemdir
banner
banner
banner