Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 13. febrúar 2016 19:29
Arnar Geir Halldórsson
Spánn: Soldado sá um Malaga
Roberto Soldado
Roberto Soldado
Mynd: Getty Images
Villarreal 1 - 0 Malaga
1-0 Roberto Soldado ('18 )

Villarreal er í góðum málum í 4.sæti spænsku úrvalsdeildarinnar en liðið marði sigur á Malaga í öðrum leik dagsins í Spánarsparkinu.

Markahrókurinn Roberto Soldado gerði eina mark leiksins eftir 18 mínútna leik.

Villarreal hefur nú 11 stiga forskot á Sevilla sem situr í 5.sæti deildarinnar en síðarnefnda liðið á þó leik til góða.

Malaga er eftir sem áður í 10.sæti deildarinnar með 30 stig og markatöluna 21-21 eftir 24 leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner