Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 14. janúar 2018 22:12
Arnar Geir Halldórsson
Myndband: Dómari sparkaði til leikmanns og gaf honum svo rautt spjald
PSG vann leikinn
PSG vann leikinn
Mynd: Getty Images
Ótrúlegt atvik átti sér stað í leik Nantes og PSG í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

PSG vann leikinn með einu marki gegn engu þar sem Angel Di Maria reyndist hetja Parísarliðsins.

Leiksins verður þó líklega frekar minnst fyrir ótrúlega frammistöðu dómarans undir lok leiksins.

Diego Carlos, varnarmaður Nantes, var að spretta til baka og hljóp, að því er virðist óvart, utan í dómara leiksins, Tony Chapron sem féll til jarðar í kjölfarið.

Dómarinn brást ókvæða við og sparkaði í áttina að Carlos. Þegar þeir voru svo báðir komnir á fætur fékk Carlos að líta rauða spjaldið frá Chapron.

Sjón er sögu ríkari en myndbönd af atvikinu hafa farið sem eldur í sinu á Twitter í kvöld.








Athugasemdir
banner
banner