Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 14. febrúar 2017 13:51
Elvar Geir Magnússon
Fazlagic kominn í dönsku B-deildina (Staðfest)
Fazlagic með Pálma Rafni Pálmasyni.
Fazlagic með Pálma Rafni Pálmasyni.
Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson
Den­is Fazlagic og Morten Beck And­er­sen sem léku með KR í fyrra eru orðnir samherjar hjá danska B-deildarliðinu Fredericia.

Fazlagic hefur skrifað undir samning við félagið út tímabilið en hann er 24 ára kant- og miðjumaður. Hann spilaði alla leiki KR í Pepsi-deildinni í fyrra og skoraði í þeim tvö mörk.

Kristinn Kjærnested formaður knattspyrnudeildar KR sagði við Fótbolta.net í síðustu viku að félagið hefði ekki boðið Fazlagic samning.

Fredericia er tveimu stigum fyrir ofan fallsæti þegar 19 umferðum er lokið í dönsku B-deildinni.

Komnir í KR:
Arnór Sveinn Aðalsteinsson frá Breiðabliki
Garðar Jóhannson frá Fylki
Robert Sandnes (óstaðfestur)

Farnir frá KR:
Hólmbert Aron Friðjónsson í Stjörnuna
Jeppe Hansen í Keflavík
Morten Beck Andersen til Fredericia
Denis Fazlagic til Fredericia
Athugasemdir
banner
banner
banner