Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 14. mars 2018 19:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Messi klobbaði Courtois
Mynd: Getty Images
Lionel Messi er búinn að koma Barcelona yfir gegn Chelsea í Meistaradeildinni.

Seinni leikur liðanna fer fram á Nývangi í Katalóníu þessa stundina. Fyrri leikurinn endaði 1-1.

Barcelona byrjaði af miklum krafti og var Messi búinn að koma Börsungum yfir eftir þriggja mínútna leik.

Marki var virkilega snyrtilegt hjá argentíska landsliðsmanninum sem braut loksins ísinn gegn Chelsea í fyrri leik liðanna. Messi var í mjög þröngu færi en tókst að klobba Thiabut Courtois, markvörð Chelsea.

Hörður Magnússon, sem lýsir leiknum á Stöð 2 Sport, gagnrýndi Courtois eftir markið.

Smelltu hér til að sjá markið.
Athugasemdir
banner
banner
banner