Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 14. apríl 2014 21:36
Magnús Már Einarsson
Uppboð: Treyjan hans Gylfa - Hæsta boð 200 þúsund
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Næstu dagana verður uppboð á Fótbolta.net á íslenskri landsliðstreyju.

Um er að ræða treyjuna sem Gylfi Þór Sigurðsson spilaði síðari leikinn í síðastliðið haust gegn Króatíu í umspilinu um sæti á HM.

Treyjan er árituð af Gylfa.

Allur ágóði af uppboðinu mun renna til móður og tveggja sona hennar – en þau misstu eiginmann og föður nýlega – eftir erfið veikindi. Fjölskyldan hefur alltaf verið samstíga og samrýmd og eru þetta erfiðir tímar hjá þeim.

Um leið og hægt er að eignast ómetanlegan minjagrip – þá munt þú hjálpa þessari fjölskyldu á erfiðum tímum.

Hægt er að bjóða í treyjuna og fá nánari upplýsingar á netfanginu. [email protected] Óskað er eftir að með tilboðinu fylgi upplýsingar um nafn og símanúmer bjóðanda.

Hæsta boð í dag: 200 þúsund krónur.

Uppboðinu lýkur klukkan 23:59 mánudaginn 14. apríl.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner