Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 15. febrúar 2018 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gerrard í beinni útsendingu: Emre Can er að fara
Emre Can hefur verið orðaður við Juventus.
Emre Can hefur verið orðaður við Juventus.
Mynd: Getty Images
Emre Can, miðjumaður Liverpool, verður samningslaus eftir tímabilið og framtíð hans er enn í óvissu, eða hvað?

Steven Gerrard, fyrrum fyrirliði Liverpool, var sérfræðingur í kringum leik Liverpool og Porto í Meistaradeildinni í gær. Þar virtist Gerrard staðfest það að Emre Can væri á förum.

„Við verðum að sjá hvað gerist. Emre Can er að fara en Naby Keita er að koma inn," sagði Gerrard, sem er í dag að þjálfa unglingaliðið hjá Liverpool, U18 liðið.

Can mátti hefja viðræður við félög utan Englands þann 1. janúar. Hann hefur verið sterklega orðaður við Juventus.

Hér að neðan má sjá þegar Gerrard segir að Can „sé á förum."



Athugasemdir
banner
banner