Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
banner
   þri 15. nóvember 2016 21:32
Jóhann Ingi Hafþórsson
Elías Már: Bættust auka fimm kíló á mann í þessari rigningu
Icelandair
Elías Már spilaði allan leikinn í dag.
Elías Már spilaði allan leikinn í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Elías Már Ómarsson fékk tækifæri í byrjunarliði íslenska landsliðsins gegn Möltu í kvöld.

Hann spilaði allan leikinn í framlínunni í öruggum og sanngjörnum sigri. Hann var mjög sáttur við spilamennskuna í leiknum.

„Við héldum boltanum, áttum fullt af færum, héldum hreinu og vörðumst vel. Við spiluðum vel út úr þessu."

Rétt fyrir leik kom algjör úrhellis rigning og segir Elías það hafi haft áhrif á leikmenn.

„Við vissum að það myndi rigna en ekki svona mikið. Það bættust auka fimm kíló á mann í þessari rigningu."

Elías skrifaði undir samning við sænska félagið Gautaborg í dag en hann hafði verið þar á láni undanfarna mánuði og staðið sig vel. Hann er spenntur fyrir því að vera áfram í Svíþjóð.

„Ég er mjög sáttur. Þetta er flottur klúbbur og ég er búinn að vera þarna í þrjá í og hálfan mánuð. Ég er mjög ánægður þarna og umgjörðin og allt í kringum þetta er mjög flott."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner