Jesus gæti farið frá Arsenal - Möguleg stjóraskipti hjá Man Utd og Bayern - Dortmund vill halda Sancho
banner
   þri 16. apríl 2013 18:47
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið ÍBV og Portsmouth - Hemmi og James á bekknum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Portsmouth fær ÍBV í heimsókn á Fratton Park í kvöld, en rétt um sex þúsund manns hafa þegar keypt miða á leikinn.

David James, markvörður ÍBV, er á tréverkinu í dag. Guðjón Orri Sigurjónsson stendur á milli stanganna.

Hermann Hreiðarsson, þjálfari Eyjamanna, er á tréverkinu hjá Portsmouth, en þetta ku vera kveðjuleikur kappans.

Portsmouth reynir að safna peningum til þess að styrkja klúbbinn enn frekar, en liðið hefur átt við fjárhagsvandamál að stríða undanfarin ár og er félagið núna í eigu stuðningsmanna.

Leikurinn hefst klukkan 19:00 á íslenskum tíma. Hér að neðan má sjá byrjunarliðin.

Portsmouth: Smith, Medway, Triggs, Awford, Webster, Whatmough, Walker, Maloney, Harris, Tarbuck, Akinde.

ÍBV: Guðjón Orri Sigurjónsson, Brynjar Gauti Guðjónsson, Matt Garner, Gunnar Már Guðmundsson, Gunnar Þorsteinsson, Aaron Spear, Víðir Þorvarðarson, Arnór Eyvar Ólafsson, Ricardson, Eiður Aron Sigurbjörnsson, Ian Jeffs.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner