Jesus gæti farið frá Arsenal - Möguleg stjóraskipti hjá Man Utd og Bayern - Dortmund vill halda Sancho
banner
   þri 16. apríl 2013 13:00
Elvar Geir Magnússon
Di Canio þegar elskaður af stuðningsmönnum
Paolo Di Canio lifir sig inn í þetta.
Paolo Di Canio lifir sig inn í þetta.
Mynd: Getty Images
„Það var alltaf ljóst í mínum auga að Paolo Di Canio yrði uppáhald stuðningsmanna," segir Adam Johnson, leikmaður Sunderland. Di Canio tók nýlega við Sunderland og varð hetja með 3-0 sigri á erkifjendunum í Newcastle.

Einhverjir stuðningsmenn urðu reiðir þegar Di Canio var ráðinn enda mikið til umfjöllunar að hann hafði heilsað að hætti fasista.

„Það er ekki hægt að finna betri leið til að vinna stuðningsmenn á sitt band en að leggja Newcastle. En ég held að þeir hefðu elskað hann hvort sem er. Það er erfitt að fara ekki á band manns sem sýnir svona mikla ástríðu og eldmóð."

Annar leikmaður Sunderland, Craig Gardner, sem spilaði ekki um liðna helgi vegna meiðsla segir að Di Canio sé þegar orðin goðsögn meðal stuðningsmanna félagsins.

Sunderland er í fimmtánda sæti, þremur stigum fyrir ofan fallsæti, og sigurinn gegn Newcastle var því ákaflega mikilvægur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner