Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   þri 16. apríl 2013 07:45
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Yahoo 
Fulham búið að semja við Fernando Amorebieta
Amorebieta í leik með Athletic Bilbao.
Amorebieta í leik með Athletic Bilbao.
Mynd: Getty Images
Fulham er búið að semja við Fernando Amorebieta, sem er varnarmaður Athletic Bilbao, samkvæmt Goal.com.

Amorebieta hefur verið sterklega orðaður við Arsenal og var næstum því farinn til félagsins á lokadegi viðskiptaglugga janúar, en ekki tókst að semja um kaupverð svo hann fer frítt frá félaginu í sumar þegar samningurinn rennur út.

Amorebieta vildi taka stökkvið og spila í ensku úrvalsdeildinni en hann hefur verið leikmaður Athletic Bilbao í átta ár, og er 28 ára.

Amorebieta lék með unglingalandsliði Spánverja en ákvað svo að spila fyrir Venesúela sem er hans fæðingarland.

Rússneska félagið Anzhi Mackhakala hafði einnig áhuga á honum en hann mun eflaust færa vörn Fulham á hærra stig í kjölfarið af tveggja ára samningsframlengingu Brede Hangeland.
Athugasemdir
banner
banner
banner