Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   þri 16. apríl 2013 19:30
Elvar Geir Magnússon
Myndband: Alex Frei stimplaði sig út með glæsimarki
Mynd: Getty Images
Alexander Frei er goðsögn meðal stuðningsmanna FC Basel í Sviss. Þessi 33 ára leikmaður er að leggja skóna á hilluna til að gerast yfirmaður íþróttamála hjá FC Lucerne.

Hann lék sinn síðasta leik fyrir Basel á heimavelli gegn FC Zurich og náði að kveðja stuðningsmenn með glæsilegu marki úr aukaspyrnu.

Frei hóf feril sinn með Basel og lauk honum þar einnig. Hann á 84 landsleiki og 42 mörk fyrir Sviss.

Landsliðsferli hans lauk reyndar á leiðinlegan hátt. Hann náði sér engan veginn á strik í sínum síðustu landsleikjum og hætti eftir að áhorfendur bauluðu stanslaust á hann í leik. Hans síðasti leikur með Basel var öllu jákvæðari.


Athugasemdir
banner
banner
banner