Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 16. júlí 2014 11:23
Magnús Már Einarsson
Luis Suarez til Barcelona (Staðfest)
Luis Suarez.
Luis Suarez.
Mynd: Getty Images
Úrúgvæski framherjinn Luis Suarez er formlega genginn til liðs við Barcelona.

Suarez kemur frá Liverpool á 75 milljónir punda en félögin náðu samkomulagi um kaupverð í síðustu viku.

Nú er Suarez sjálfur búinn að ganga frá samningum við Barcelona.

,,Hann er 100% meðlimur hjá félaginu," sagði Andoni Zubizarreta yfirmaður íþróttamála hjá Barcelona á fréttamannafundi í dag.

Suarez er í fjögurra mánaða banni frá fótbolta og Barcelona á í erfiðleikum með að fá leyfi til að kynna leikmanninn opinberlega fyrir stuðningsmönnum vegna bannsins.

Suarez kom til Liverpool frá Ajax í janúar 2011 og hefur raðað inn mörkum hjá félaginu síðan þá. Hann mun leika í treyju númer níu hjá Barcelona.
Athugasemdir
banner
banner
banner