Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
   lau 17. janúar 2015 21:20
Alexander Freyr Tamimi
Ronaldo og Irina Shayk hætt saman (Staðfest)
Bál ástarinnar hefur kulnað hjá Shayk og Ronaldo.
Bál ástarinnar hefur kulnað hjá Shayk og Ronaldo.
Mynd: Getty Images
Nú hefur það fengist endanlega staðfest að þau Cristiano Ronaldo og Irina Shayk eru hætt saman, en ansi hávær orðrómur hefur verið í gangi um sambandsslit þeirra að undanförnu.

Talsmaður rússnesku ofurfyrirsætunnar staðfesti í samtali við slúðurblaðið "Page Six" að samband þeirra væri nú á enda, en þau voru saman í um fimm ár.

Orðrómarnir um að þau Ronaldo og Shayk væru hætt saman fór af stað eftir að sú síðarnefnda mætti ekki með Portúgalanum á afhendingu Gullknattarins, sem Ronaldo vann annað árið í röð.

Glöggir einstaklingar með nóg af frítíma tóku svo eftir því að þau væru hætt að fylgja hvor öðru á Twitter og það þótti ýta stoðum undir fréttirnar af sambandsslitum þeirra.

Einhverjir fjölmiðlar héldu því fram að Shayk hefði lent upp á kant við fjölskyldu Ronaldo, þá sérstaklega móður hans, en því neitaði talsmaður hennar og sagði ekkert að sambandi Shayk og fjölskyldu fótboltamannsins.

Hvorugt þeirra ætti að vera í miklum vandræðum með að finna sér nýjan maka.
Athugasemdir
banner
banner
banner